jæja þá er marr komin aftur á klakann í normið ... Heima er
alltaf bezt, ég get ekki að því gert en ég byrja alltaf að syngja
ættjarðarsöngva þegar ég lendi á klakanum - þykir alveg hrikalega
vænt um þetta fallega kalda land okkar hihii... en well það er sko
meira en nauðsynlegt að komast langt út á suðrænar slóðir
reglulega... helst ein sólarferð, ein borgarferð, ein verslunarferð
og ein menningarferð árlega jammz þá er ég sátt
en jammz Marmaris var eintóm snilld, ótrúlega gott að liggja í
sólinni og drekka óáfenga kokteila hihii,.... við höfðum það
hrikalega næs- fórum að snorkla í afskekktri einkavík við
frumskóginn, Bárður reyndar skellti sér í alvöru köfun en ég og
miss Rannsý létum okkur nægja að snorkla og liggja svo aleinar í
einkavíkinni okkar og hafa það ógisslega gott
Einn daginn
tókum við spíttbát á leigu sem var geggjað stuð, brunuðum um og
sóluðum okkur víííí... svo tókum við bíl á leigu og heimsóttum
Bodrum rosa fínan bæ inn í landi og skoðuðum sveitina, sáum meðal
annars geitahirði og fleira sem er nú ekki algeng sjón hér í okkar
vestræna umhverfi... Annars bara höfðum við það ótrúlega gott,
vorum á fínasta hóteli down town við snekkjuhöfnina þar sem
sundlaug var á þakinu og einkaströnd fyrir okkur hótelgestina
Við borðuðum að sjálfsögðu á fínustu ressunum öll
kvöld og létum dekra við okkur eins og Íslendingum sæmir á erlendri
grundu ja man 
Ég afrekaði það að verða þrítug (özzz) í úglandinu og lifði það
af hahaha.... áttum stórgóðan dag þar sem eiginmaður minn vakti mig
með þeim fréttum að við værum á leiðinni í gullverksmiðjuna að
velja gjöf vííí.... ég valdi að sjálfsögðu stærsta
hvítagullshringinn sem ég fann með flestum demöntunum eða 30
meðalstórum talsins
brosið hefur ekki þurrkast af mér síðan
thihihiii..... stelpurnar buðu mér svo í tyrkneskt bað og
nudd þar sem við fórum á kostum haha... sóluðum okkur pínku pons
svo var bara drifið sig í ballskóna og dress og út að borða á
fínasta staðnum sem eiginmaðurinn fann- n.b. geggjaður- upp í
hlíðinni fyrir ofan Marmaris með útsýni yfir allt og geggjað góður
matur namm.......-
yndislegur
TAKK FYRIR MIG 
20. VIKNA KRÍLI
jammz litla bumbukrílið er orðið 20 vikna og blómstar vel, vorum
í sónar í gær og allt leit rosa vel út, það sparkaði og
veifaði, saug puttann og gaf okkur þumbs up sem merki um að allt
væri í stakasta lagi, thhiii algjört krútt hlökkum rosa til að fá
það í heiminn

well góðir hálsar vona að ég sé nú aðeins búin að bæta upp
bloggleysi síðustu daga, vona að allir hafi það gott í fríinu sínu
og svonna, ég er btw á leiðinni í frí aftur hihii og verð frá þar
til meistaranámið byrjar 
Chiao bellas og bellos
yours- Lady Agnes